Feeds:
Færslur
Ummæli

Helgar

Ég elska helgar, finnst svo frábært að sofa aðeins lengur en til 7 og finnst svo gott að geta bara verið heima að hugga mig með dóttlunni minni.

Sumir höfðu það þó kannski aðeins of huggulegt í gær, og það meira að segja uppi á stofuborði… En það getur auðvitað alltaf verið gott að leggja sig aðeins upp á borði ;)

IMG_8614

IMG_8616

Kósýheit

Jæja, nú má vænta þess að vinnufirður verði á Alþingi, því búið er að afgreiða þau mál sem skipta almenning mestu máli, þ.e. hvort sækja eigi um aðild að Evrópusambandinu og svo þetta blessaða IceSave mál. Ég ætla þó ekkert að vera að þreyta fólk á því að ræða mínar skoðanir á þessum hlutum.

En vegna þessa er móðir mín komin í sumarfrí og erum við því komin í sumarbústað við Flúðir, öll fjölskyldan fyrir utan hann Torfa minn, en hann þurfti að vinna. Ég hef samt aldrei áður séð svona flottan sumarbústað!

En nú er besta ð halda áfram að elda – er með beikonvafðar kjúklingabringur með piparostafyllingu í ofninum ograuðvín í glasi. Þetta getur ekki klikkað ;)

Ég er búin að vera á atvinnuleysisbótum síðan í júní. Það væri búið að vera hundleiðinlegt ef að ég hefði ekki haft tækifæri til að vera annars staðar en bara að hanga heima í sumar. Eftir þetta sumar þá skil ég hreinlega ekki hvernig í ósköpunum fólk nennir að vera atvinnulaust í marga mánuði og upp í ár og meira en það!!

Ég legg til að það verði bannað að vera atvinnulaus í meira en 2 mánuði, það tekur ekki lengri tíma að finna vinnu og það er í alvöru NÓG af vinnu að hafa á þessu blessaða landi okkar þrátt fyrir að það sé kreppa!

Á síðu vinnumálastofnunar eru í boði mörghundruð störf. Svo virðast sumir alltaf geta fengið vinnu, hvers vegna er það?

Ég hef dregið þá ályktun af þessu að þeir sem eru á atvinnuleysisbótum og eru búnir að vera það lengi eru það sem á hreinni íslensku kallast aumingjar!!! :)

Að hafa tíma

Í allan vetur er ég búin að hafa svo mikið að gera að mér fannst ég stundum ekki geta hugsað… Núna hef ég síðan 11. maí ekkert sérstakt haft að gera, bara búin að vera að leika mér mest. Bara búin að vera í sauðburði og almennu tjilli ;) Maður er mjög fljótur að venjast því að hafa svona mikinn tíma.. svo núna í dag er ég búin að vera að hringja út til að redda vottorðum því ég var að skrá mig á atvinnuleysisbætur og það finnst mér bara voðoa vinna, fyrr í maí hefði þetta ekki verið neitt mál.. hvernig verð ég þegar komið verður fram í ágúst og ég þarf að byrja aftur í skólanum??

Ég vona að ég fái eitthvað að gera í sumar svo ég verði ekki latara en allt sem latt er :S

Áfangi

Í dag náði ég þeim áfanga að skila B.A. ritgerð á skrifstofu lagadeildarinnar….

003

hafi ég náð prófunum, sem ég ætla rétt að vona að ég hafi gert, er ég orðin lögfræðingur eftir nokkra daga ;) ;) SNILLD

Á gervihnattaöld og ég hef bara aldrei tíma til að blogga.. eða að ég hef aldrei neitt að segja…

Nú sit ég í skólanum og á að vera að læra fyrir próf sem ég er að fara í á fimmtudaginn, en guð minn góður hvað ég nenni því ekki. Þetta er þó alls ekki leiðinlegt, mig langar bara mikið frekar að gera eitthvað annað.

Í dag, eftir kosningar er ég svo ánægð með mömmu mína, mamma mín komst á þing þetta var spennandi, um var að ræða baráttusæti, í síðustu kosningum munaði mjög litlu að þriðji maður færi inn á þing fyrir samfylkinguna í NA…. þegar ég sofnaði í gærkvöldi var mamma inni á þingi.. ég svaf því vært fram á morgun… þegar ég vaknaði svo í morgun klukkan 8 var mitt fyrsta verk að skoða úrslit kosninga, þá var mamma ekki inni, svo bara svona klukkutíma seinna komu síðustu tölur og mamma kom inn sem uppbótarþingmaður ;) ánægð með gömlu kellinguna ;)

Mamma verður góður þingmaður, (og já ég segi þingmaður) mamma er góð í að taka til eftir fólk sem hefur draslað til, hún hefur langa reynslu í því, hún hefur þolinmæði á við fimmtán manneskjur og hún er ákveðin og þrjósk á við aðrar fimmtán ;) Ekki skemmir fyrir að hún er með svo mikla og sterka réttlætiskennd að hún verður seint jafn óheiðarleg og margur þingmaðurinn er…

3279018276_5af6bdd374_b

Ég er ánægð með að sjálfstæðisflokkurinn fær að hvíla sig núna í smá tíma… ég veit að sjálfstæðisflokkurinn er ekki sá eini flokkur sem kom kreppunni af stað, enda er kreppan á heimsvísu, ekki bara hér, en hann þarf aðeins að hvíla sig samt

Spurningar

Jæja.. dóttir mín er komin á þann aldur að hún er mjög mikið að spá í því hvað allt þýðir. En það sem hún spáir mest í eru svona hugtök sem getur verið erfitt að útskýra þannig að hún, sem er bara 3ja og hálfs skilji hvað ég er að segja..

Í fyrra þegar ég var að kenna henni hvað leikskólinn hennar heitir og svona þá vildi hún vita hvað skólinn minn heitir og hvað ég væri eiginlega að læra þar. Hún veit s.s. síðan þá að ég er að læra lögfræði, en það er ekkert rætt neitt sérstaklega okkar á milli.

Hún spurði mig svo áðan þegar við sátum og borðuðum kvöldmat. “mamma, hvað þýðir eiginlega lögfræði??”

Ég sem er búin að vera að læra þetta forláta fag í 3 ár átti í mesta basli með að útskýra þetta fyrir barninu.

011

Fimleikadrottning

Það snýst allt um það orðið á mínu heimili núna að vera rosa dugleg fimleikastelpa..

Karen Rós hefur nokkrum sinum séð í sjónvarpinu fimleikamót upp á síðkastið og er alveg óð.. Núna er það nýjasta að hún vill standa á höndum!! En þar sem að hún er þriggja ára kann hún það ekki alveg.. En hún reynir samt og reynir ;) það kemur svo alltaf í hlut mömmunnar að grípa í fæturnar og hjálpa til.. Þetta getur hún síðan dundað sér við tímunum saman.. ótrúleg elja ;)

005

0061

0071

þessar myndir sýna ágætlega heimilislífið á Kristnibraut ;)

Hommar

Ég vil byrja þessa færslu á að taka fram að ég hef ekkert á móti hommum eða lesbíum!!

Þegar það hefur verið sagt langar mig að spyrja af hverju allir hommar eru svona amerískir. Af hverju eru hommar svona ýktir??

Lesbíur eru bara eins og annað fólk, þær eru bara venjulegar. En hommar eru alltaf eins og þeir leggi sig einstaklega mikið fram við að vera langt frá því að vera eins og aðrir. Þeir tala öðruvísi, þeir labba öðruvísi, þeir klæða sig öðruvísi.. af hverju ætli þetta sé?? 

Ég vil bara enda þetta á að taka það fram aftur að ég hef ekkert á móti hommum. Ég er bara að velta þessu fyrir mér!!

Jahérna

Mikið svakalega er ég fegin að ég klári skólann þegar ég verð 27 ára… Því ef andleg heilsa á eftir að fara niður á við eftir það er ég ekki viss um að ég gæti verið í skólanum, enda er það nánast að verða bara fyrir fólk með sjálfspíningarkvöt að vera í skóla.

Older Posts »